![]() |
Mannlaus veröldSaga mannsins er löng en margar aðrar lífverur hafa þó verið til mun lengur, að ekki sé minnst á sjálfa jörðina. Framan af lifðum við í sæmilegri sátt við heiminn en á tiltölulega skömmum tíma hefur þetta gjörbreyst; æ fleiri tegundir jurta og dýra eru í útrýmingarhættu, sífellt meiri ógn stafar af loftslagsbreytingum og mengun frá iðnaði okkar og lífsháttum. En hvað er til ráða? Í þessari einstöku bók veltir Alan Weismann fyrir sér hvað myndi gerast á jörðinni ef mannskepnan hyrfi en allt annað yrði kyrr á sínum stað. Hvað yrði um öll mannvirkin okkar og eiturefnin sem við höfum búið til? Hvernig myndi dýrum og gróðri farnast í mannalausri veröld? Höfum við unnið óbætanlegan skaða á lofti, hafi og jörð eða er heiminum viðbjargandi? Mannlaus veröld er athyglisverð og sláandi hugvekja um áhrif mannsins á umhverfið sitt – og hvað heimurinn gæti grætt á að losna við okkur! Rithöfundurinn Andri Snær Magnason ritar formála bókarinnar en þýðandi hennar er Ísak Harðarson. Bókin hefur þegar verið þýdd á um 30 tungumál og unnið er að gerð kvikmyndar eftir efni hennar. Hún sat í 26 vikur samfleytt á metsölulista New York Times og var valin besta fræðirit ársins 2007 af Time Magazine.
***** „Mannlaus veröld bregður upp myndum og spurningum. Forvitnilegum, aðkallandi og fræðandi.“ Nánari upplýsingar og margmiðlunarefni tengt bókinni má finna hér. Höfundar: Alan Weisman, Andri Snær Magnason
Bókaklúbbar
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |