![]() |
GullgerðarmaðurinnDauðinn getur ekki heimt mig til sín, sjúkdómar geta ekki skaðað mig. Þeir sem sjá mig eiga erfitt með að segja til um aldur minn en samt fæddist ég á því herrans ári 1330, fyrir meira en 670 árum. Nicolas Flamel var einn færasti gullgerðarmaður miðalda en hans er getið í ófáum sagnfræðiritum. Sagan segir að hann hafi uppgötvað leyndardóminn um eilíft líf. Samkvæmt opinberum gögnum dó Nicolas Flamel árið 1418. En gröfin hans er tóm. Stundum eru goðsagnir sannar. Nú eru fimmtán ára tviburar frá San Francisco um það bil að verða þátttakendur í ótrúlegustu goðsögn allra tíma. Gullgerðarmaðurinn er fyrsta bók Írans Michael Scott um hinn ódauðlega Nicolas Flamel. Þessi frábæra ævintýrabók hefur farið sigurför um heiminn og væntanleg er kvikmynd eftir sögunni. Guðni Kolbeinsson þýðir.
„Þetta er stórskemmtileg bók sem segir frá galdramönnum, töfrum og ýmiskonar fornynjum og klassískri baráttu góðs og ills. Bók sem allur unnendur Harry Potter bókanna ættu að taka fagnandi. Hér er mikill hasar, allskonar kynjaskepnur og furðuverur. Góð ævintýri eru gulli betri og vonandi verða fleiri bækur þýddar í þessum ágæta bókaflokki.“ „Hrífandi fantasía … Frábær saga.“
Höfundur: Michael Scott
Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |