Gæska
Tilboð: 1.495 kr. Verð: 1.990 kr.

Kaupa

Gæska

Íhaldsþingmaðurinn Halldór Garðar vaknar og veröldin er allt önnur en þegar hann lagðist til svefns: Það skíðlogar í Esjunni og reykjarmökkinn leggur yfir Reykjavík. Austurvöllur er þéttskipaður mótmælendum hvernig sem lögreglan spúlar þeim burt. Skæðir sandstormar geisa. Konur hrapa ofan af byggingum og fletjast út á gangstéttarhellum. Ástandið fær svo á Halldór að hann læsir sig inni og skrópar í þinginu. En þegar ung marokkósk stúlka biður hann um að hjálpa sér að leysa foreldra sína úr klóm íslensku ríkisstjórnarinnar öðlast líf hans áður óþekktan tilgang.

Gæska er ótrúlega hugmyndarík og fyndin skáldsaga um allt sem skorti á Íslandi síðustu ár: Jafnrétti, bræðralag og meðalhóf – og allt hitt sem nóg var af: Græðgi, heimsku og fordóma. Ímyndunarafli Eiríks Arnar Norðdahl halda engin bönd og hér nýtur stílgáfa hans sín til fullnustu.

Tekið er á atburðum nýliðinna ára á Íslandi, hruninu mikla, aðdraganda og eftirköstum, og þannig staðsetur bókin sig í flokki sem nú þegar er mögulegt að kalla sérstaka undirgrein íslenskra samtímabókmennta … En Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta árs, verk sem slær nýjan og ferskan tón í uppgjörsbókmenntaflórunni, með þeim tilþrifum sem þarf til að verkið sligist ekki undan þunga hins aðkallandi sögulega veruleika sem liggur til grundvallar; með þessari skáldsögu eygjum við útlínur þess uppgjörs sem skáldskapurinn er fær um að veita í stríðinu við samtímann.”
Björn Þór Vilhjálmsson / TMM 1 2010

„Eiríkur Örn siglir öruggt uppá við og verður áhugaverðari með hverri bók sem líður. Hann nær, með Gæsku, að skemmta lesendum með frumleika og óvæntum atburðum, en gagnrýnir á sama tíma íslenskt samfélag og þann súrrealisma sem má í alvörunni finna hér á landi.“
Ragnheiður Eiríksdóttir / Morgunblaðið

****
„[Eiríkur Örn er] fádæma stílisti… Stíllinn á Gæsku er bæði fjölbreyttari og þróttmeiri en á fyrri skáldsögum Eiríks, hann leyfir sér meira, bæði flóknari stíl og meiri hasar og læti í lýsingum og atburðum.“
Jón Yngvi Jóhannsson / Pressan.is

****
„Farsakennd ólíkindalæti kitla hláturtaugarnar í stórskemmtilegri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl … Höfundur Gæsku er feikna stílisti sem þrátt fyrir látlausan flaum orða hefur hárbeittan, írónískan tón og gott vald á framvindunni og persónum sínum. … Það er klisja að segja að ekkert sé höfundi heilagt. Hann tætir allt og alla í sig og sérstaklega hið háa Alþingi; glaðhlakkalegur og fyndinn. … Trúlegt er að með Gæsku greini höfundur ástandið best af þeim sem hafa skrifað bækur um það sem er að gerast hjá okkar ringluðu þjóð; að minnsta kosti er hann fyndinn og beittur í gegn. “

Hrund Ólafsdóttir / Morgunblaðið

„…hrunsbók með óvæntum snúningi.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið

„Gæska Eiríks Arnar Norðdahls er áleitin bók og ferskur andblær í allri þeirri íslensku listsköpun sem nú sækir andagift sína í hrunið alræmda … fjörug og kröftug þeysireið … athyglisvert listaverk sem færir umræðuna og hugmyndaheim íslensku kreppunnar upp á æðra stig og verður vonandi uppspretta frjórrar umræðu um kreppur í víðara samhengi.“
Sigurður Ólafsson / bokmenntir.is

Höfundur: Eiríkur Örn Norðdahl

Nýjast | A–Ö | Verð ↓
Eiríkur Örn Norðdahl (f. 1. júlí 1978) hefur verið ötull á ritvellinum síðan hann sendi frá sér sína fyrstu bók, Heilagt stríð: runnið undan rifjum drykkjumanna, 2001. Um svipað leyti stofnaði hann útgáfuna Nýhil með ...
Tilboð: 2.245 kr.
Verð: 2.990 kr.
Kaupa

Tilboð: 1.410 kr.
Verð: 1.876 kr.
Kaupa

Nýjar bækur | Spennusögur | Barnabækur | Skáldsögur | Ljóð
karfan mín
Leita