![]() |
224 bls.
JPV Útgáfuár: 2010 Píslarvottar án hæfileika - kiljaEr hægt að vera hetja á hugsjónalausum tímum? Skáldsagan Píslarvottar án hæfileika eftir Kára Tulinius er komin út hjá JPV útgáfu. Í bókinni er fjallað um fimm ungmenni í Reykjavík. Öll vilja þau láta til sín taka og setja mark sitt á samfélagið en það gengur misjafnlega. Þau eiga sér óljósa drauma um að fremja hryðjuverk en það er erfitt að vera öfamaður þegar ekkert er þess virði að drepa eða deyja fyrir. Píslarvottar án hæfileika er fyrsta bók Kára en hann hefur áður fengist við ljóðagerð og hafa verk hans m.a. birst í safnritinu Af steypu og hinu breska Poetry Review. „Styrkleiki Píslarvotta án hæfileika felst einkum í byggingunni, hvernig tímaplanið er spunnið saman, og fléttunni… fyrirtaks frumraun.“ „… að mörgu leiti mjög góð skáldsaga … mig langar til að vita hvað þessi höfundur gerir næst.“ „Glúrin samtímalýsing.“ Höfundur: Kári Tulinius Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |