![]() |
44 bls.
JPV Útgáfuár: 2012 Stafakarlarnir með geisladiskStafakarlarnir er ein vinsælasta barnabók sem gefin hefur verið út hér á landi og hún hefur hjálpað þúsundum barna að læra að lesa. Hér er á ferðinni ný útgáfa af þessari sívinsælu sögu með teikningum eftir Frédéric Boullet. Í þessu smellna ævintýri lifna stafirnir við sem litlir karlar og vilja þeir ólmir fá að leika sér. Stafakarlarnir eru bráðskemmtilegir og fyrr en varir er barnið farið að þekkja þá og hljóðin sem þeir gefa frá sér. Þannig verða stafirnir smám saman hluti af heimi barnsins. Stafakarlarnir er einstaklega sniðug saga ætluð börnum sem vilja kynnast stafrófinu. Aftast í bókinni má finna léttar spurningar og leiki fyrir börnin. Til dæmis hefur stafurinn „ð“ falið sig á sumum síðum bókarinnar og börnin geta spreytt sig á að finna hann. Geisladiskur með Stafakarlalögunum fylgir með þessari nýju útgáfu af Stafakörlunum! „… einstaklega skemmtileg og lífleg saga. Tilvalin bók fyrir krakka sem vilja læra að þekkja stafina.“ Höfundur: Bergljót Arnalds Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |