![]() |
Kortabók ÍslandsÁ að ferðast innanlands í sumar? Kortabók Íslands inniheldur ný kort í mælikvarða 1:300 000, með útliti Íslandsatlass Máls og menningar, sem kom út árið 2005. Hér eru svipbrigði landsins sýnd á 60 kortum sem unnin eru með stafrænni kortatækni og sýna landið allt, frá hæstu tindum til ystu annesja og eyja. Kortabókin er gormabundin í hentugu handbókarbroti og geymir yfir 9000 örnefni. Auk þess eru í henni fjöldi þéttbýliskorta, ítarlegar nafnaskrár og kort yfir tjaldstæði, sundlaugar, söfn og golfvelli. Kortabókin hentar öllum aldurshópum og á með réttu að vera til á hverju heimili og í öllum bílum landsmanna. Ellefta útgáfa 2009-10. Höfundur: Hans H. Hansen
Nýjast | A–Ö | Verð ↓ | Komdu mér á óvart!
![]()
Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |