![]() |
10/01/2013
LoveStar tilnefnd í Bandaríkjunum
Sagan kom fyrst út hjá Máli og menningu 2002 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hún hlaut bæði Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið – markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið. En tíminn er naumur … Til baka
![]() ![]() Afskráning af póstlista
Hrafninn – kiljuklúbbur Klassíski kiljuklúbburinn Uglan - kiljuklúbbur Tímarit Máls og menningar Forlagið · Bræðraborgarstíg 7 · 101 Reykjavík · Sími 575 5600 · Fax 575 5601 · forlagid@forlagid.is
| ![]() |