Hreinsarinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr. Setja í körfu

Hreinsarinn

1.490 kr.

Hreinsarinn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.490 kr. Setja í körfu

Um bókina

Bertram og vinir hans, Bjarki, Kasper og Felix, eru nýbúnir með grunnskólann og hafa stofnað klíku sem þeir kalla Krummana. Bertram býr einn með mömmu sinni en hún starfar við framreiðslu á veitingastað. Bertram man ekki mikið eftir pabba sínum. Hann var ekki nema sjö ára þegar pabbi hans var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð. Dag einn sér Bertram dýran leðurjakka á veitingastaðnum þar sem mamma hans vinnur og stelur honum. Hann rekst á hlut sem er falinn í leynivasa í jakkafóðrinu. Þá hefst atburðarás sem á eftir að hafa skelfilegar afleiðingar, ekki bara fyrir Bertram.

Roland Benito hjá kærudeild lögreglunnar er kallaður á vettvang ásamt kollega sínum til að yfirheyra tvo lögreglumenn í útkalli. Kvörtun hafði borist út af hávaða í heimahúsi, en í sömu andrá og lögregluna ber að garði stekkur maður út um glugga á fimmtu hæð. Ekkert virðist vera grunsamlegt við aðstæður. En forvitni Rolands vaknar þegar hann ræðir við dótturdóttur sína sem reynist vera besta vinkona dóttur fangavarðarins sem dó. Síðar heyrir hann orðróm um að fangi hafi látist í fangelsinu þar sem hann vann og að fangavörðurinn hafi sætt hótunum og eftirliti. Var þetta kannski eitthvað annað en sjálfsmorð?

Fréttakonan Anne Larsen á sjónvarpsstöðinni TV2 á Austur-Jótlandi er einnig að fjalla um þessi mannslát. Í rannsókn sinni hnýtur hún um annað mannslát, af lögmanni sem lést í umferðarslysi. Hún kemst að því að öll þessi mannlát tengjast tilteknum fanga, barnamorðingjanum Patrick Asp, sem afplánar lífstíðardóm fyrir morð á barnungri dóttur sinni. Hann situr í sama fangelsi og fangavörðurinn starfaði.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 10 klukkustundir að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
3.890 kr.
3.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
5.890 kr.
2.690 kr.
1.790 kr.
1.290 kr.

INNskráning

Nýskráning