Ævar Þór einn af bestu barnabókahöfundum Evrópu

[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_3″ last=“no“ spacing=“yes“ center_content=“no“ hide_on_mobile=“no“ background_color=““ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ background_position=“left top“ hover_type=“none“ link=““ border_position=“all“ border_size=“0px“ border_color=““ border_style=““ padding=““ margin_top=““ margin_bottom=““ animation_type=““ animation_direction=““ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ class=““ id=““][fusion_imageframe lightbox=“no“ gallery_id=““ lightbox_image=““ style_type=“none“ hover_type=“none“ bordercolor=““ bordersize=“0px“ borderradius=“0″ stylecolor=““ align=“none“ link=““ linktarget=“_self“ animation_type=“0″ animation_direction=“down“ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ hide_on_mobile=“no“ class=““ id=““] [/fusion_imageframe][/fusion_builder_column][fusion_builder_column type=“2_3″ last=“yes“ spacing=“yes“ center_content=“no“ hide_on_mobile=“no“ background_color=““ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ background_position=“left top“ hover_type=“none“ link=““ border_position=“all“ border_size=“0px“ border_color=““ border_style=““ padding=““ margin_top=““ margin_bottom=““ animation_type=““ animation_direction=““ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ class=““ id=““][fusion_text]Stórtíðindi af Bókamessunni í London. Alþjóðlega barnabókahátíðin Hay Festival hefur kynnt hinn svokallað Aarhus 39-lista, 39 bestu evrópsku barnabókahöfundana undir 39 ára aldri. Ævar Þór Benediktsson, best þekktur sem Ævar vísindamaður, var þar á meðal, einn Íslendinga. Hann er staddur í London til að veita viðurkenningunni móttöku og taka þátt í pallborðumræðum um barnabækur.

Ævar er að vonum ánægður: „Þetta er mikill heiður og virkilega gaman að komast þarna á blað. Íslenskar barnabækur eru vel á pari við þær erlendu.”

Höfundarnir á listanum koma til með að vinna saman að metnaðarfullu verkefni fyrir menningarborg Evrópu, Aarhus. Til stendur að halda bókmenntahátíð þar síðar á árinu auk þess sem að út koma tvö söfn með verkum höfundanna á dönsku og ensku.

Í dómnefnd sátu þrír virtir barnabókahöfundar; Kim Fupz Aakeson frá Danmörku, Ana Cristina Herreros frá Spáni og Matt Haig frá Englandi. Höfundarnir sem valdir voru fengu það verkefni að skrifa sögu byggða á þemanu „Ferðalag“ en þær koma út í fyrrnefndum söfnum hjá Alma Books í Bretlandi og Gyldendal í Danmörku. Saga Ævars, ,,Bókaflóttinn mikli”, fjallar um einstaklega vaskan bókasafnsfræðing sem kemst í hann krappan.

Næsta bók Ævars kemur út nú í maí og verður sú þriðja í röðinni um bernskubrek Ævars vísindamanns. Hún ber nefnið Gestir utan úr geimnum. Bókin er ákveðinn lokahnykkur í þriðja Lestrarátaki Ævars en að vanda voru fimm heppnir krakkar dregnir út sem verð að persónum í bókinni. Að þessu sinni var það Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem dró úr pottinum. Aldrei hafa verið lesnar fleiri bækur en í ár, rúmlega 63 þúsund talsins. Ævar hefur boðað að átakið verði haldið í fjórða sinn næsta vetur.[/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning