Þriðji ísbjörninn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2008 2.390 kr.
spinner

Þriðji ísbjörninn

2.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2008 2.390 kr.
spinner

Um bókina

Þorgrímur Þráinsson er einn af eftirlætisrithöfundum íslenskra barna og unglinga. Í Þriðja ísbirninum spinnur hann spennandi og eldfjöruga sögu um daginn sem þriðji ísbjörninn gengur á land og móttökunefndin samanstendur af þremur hugmyndaríkum krökkum. Stórskemmtilegt framhald af þeim atburðum sem áttu sér stað hér á landi árið 2008.

Þegar tveir ísbirnir hafa gengið á land sama sumarið hugsar fólk um fátt annað. „Ég væri til í að fá ísbjörn í afmælisgjöf,“ segir unglingurinn Karen þegar fjölskylda hennar þarf að skreppa norður í land. Síst grunar hana þó að systkini hennar þrjú, Bjössi, Lóa og Krummi, fái tækifæri til að láta þá ósk rætast.

Þorgrímur Þráinsson hefur skrifað fjölda barna- og unglingabóka, þar á meðal eina af vinsælustu bókum sem komið hafa út hér á landi, Tár, bros og takkaskór (1990). Fyrir Margt býr í myrkrinu (1997) hlaut Þorgrímur Íslensku barnabókaverðlaunin og síðustu tvær bækur hans fyrir unglinga, Svalasta 7an og Undir 4 augu, nutu fádæma vinsælda.

„Þetta er skemmtileg bók … hún er spennandi, það eru fyndnar lausnir, það er alltaf eitthvað að gerast og hann [Þorgrímur] er góður í persónusköpun … fjölskyldustemningin er ferlega góð í þessari bók, ég naut hennar mikið … Ákaflega svalur ísbjörn.“
Gerður Kristný / Mannamál, Stöð 2

[Domar]

„Þriðji ísbjörninn er létt og kát saga fyrir krakka sem eru komnir vel af stað í lestri og hafa gaman af stuttum ærslasögum.“
Hildur Heimisdóttir / Fréttablaðið

„ … sagan er stutt, hæfilega fyrirsjáanleg, enn á þeim forsendum að taka sig ekki of alvarlega, og einmitt þessvegna er hún fyndin og skemmtileg og virkar vel sem dulítil fjölskylduskemmtun … Að lokum, og jafnvel síðast en allsekki síst, ber að nefna hlut mynda í bókinni, en um þær sér Halla Sólveig Þorgeirsdóttir af sinni vel þekktu snilli. Kápumyndin gefur strax tóninn og myndirnar inní bókinni eiga ríkan þátt í að skapa sögunni þann léttúðuga búning sem gerir hana vel heppnaða. Litlu bjarnarsporin sem marka þáttaskil í köflum eru ekki ofnotuð og teikna vel upp þá hárfínu línu íróníu, krúttleika og ógnar sem bókin dansar á.“
Úlfhildur Dagsdóttir / www.bokmenntir.is

[/Domar]




Tengdar bækur

1.990 kr.4.490 kr.
Allt hold er hey
990 kr.2.590 kr.
Hjálp
990 kr.4.190 kr.
Ertu guð afi? eftir Þorgrím Þráinsson
990 kr.3.190 kr.
Tár, bros og takkaskór
690 kr.3.390 kr.
Henri rænt í Rússlandi
990 kr.4.290 kr.
Henri hittir í mark
990 kr.4.190 kr.

INNskráning

Nýskráning