Bankastræti núll
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Mjúk spjöld | 2011 | 185 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | x | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Mjúk spjöld | 2011 | 185 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | x | 990 kr. |
Um bókina
„Á Íslandi er veruleikinn einsog nýtt bókmenntaform. Hann slær öllum skáldskap við. Öfgafullir súrrealistar hljóma einsog raunsæjar kerlingar, glæpasögur einsog vögguvísur og furðusögur hafa ekkert í ímyndunarafl útrásarvíkinganna að gera … Ísland er einsog raunveruleikaþáttur, eldgos í beinni útsendingu og fjármálakreppa sem breytir bankastjórum í eftirlýsta menn.“
Bókin Bankastræti núll eftir Einar Má Guðmundsson hefur undirtitilinn „sögur úr veruleikanum“. Þar skrifar einn fremsti höfundur okkar Íslendinga um samband þjóðlífsins og menningarinnar – ekki ólíkt því og hann gerði í Hvítu bókinni árið 2009.
Hér er viðfangsefnið þrenning bókvitsins, verkvitsins og siðvitsins og hvernig henni hefur verið sundrað, ofurvald fjármálaheimsins, afþreying og reyfarar, eldfjöll, bankar og byltingar.
Er annars hægt að kaupa menninguna?
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 4 klukkustundir og 44 mínútur að lengd. Stefán Jónsson les.
8 umsagnir um Bankastræti núll
Elín Pálsdóttir –
„Þetta eru skemmtileg skrif … djörf tilraun til að draga saman í þematengdan ópus marga þræði og verður ljómandi í hinum persónulega stíl hans sem þroskast um leið og hann ber æ sterkari höfundareinkenni …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Elín Pálsdóttir –
„…húmor og kaldhæðni þar sem Einar Már skopast að íslensku útrásarmönnunum, bönkunum og góðærinu og segir sögur af því sem honum dettur í hug. Skemmtanagildi hennar er … ótvírætt og var kvöldstundinni vel varið í lesturinn.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson / DV
Elín Pálsdóttir –
„Einar Már er að mörgu leyti skarpur þjóðfélagsrýnir og víða bendir hann á brotalamir í samfélaginu, stjórnmálunum og fjölmiðlunum. Það er vel. … Hugleiðingar Einars Más vekja mann til umhugsunar um ýmsa hluti…“
Kolbeinn Óttarsson Proppé / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Bók hans er skemmtileg aflestrar … Hann er með ýmiskonar óvæntar tengingar í texta sínum og skemmtilegar frásagnir úr eigin lífi.“
Börkur Gunnarsson / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Undirtónninn er skörp þjóðfélagsdeila og krafa um að fjármálamenn og bankar beri sjálfir ábyrgð á skuldbindingum sínum en þeim sé ekki velt á herðar almennings.“
Björn Bjarnason / Þjóðmál
Elín Pálsdóttir –
„Vandlætingin er mikil í ritgerðasafni Einars Más Guðmundsonar, en það sama má segja um trúna á bókmenntirnar sem vopn í baráttunni gegn innihaldsleysi og tómhyggju.“
Jørgen Johanson / Berlingske Tidende
Elín Pálsdóttir –
„Boðskapurinn er að bókmenntir og listir séu besta vörnin gegn þeim ærumissi sem Ísland og önnur lönd hafa liðið á þessum krepputímum.“
Andreas Harbsmeier / Information
Elín Pálsdóttir –
„Bankastræti núll er nútímasaga og prýðilegt ólyfseðilsskylt lyf handa öllum sem eru með verki í vasanum eftir berserksgang fjármálafurstanna í Evrópu.“
Lars Trier Mogensen / Politiken