Feilspor

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.490 kr. Setja í körfu
Kilja 2019 474 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Feilspor

990 kr.3.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2022 App 1.490 kr. Setja í körfu
Kilja 2019 474 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Um bókina

Morguninn eftir ostruhátíðina miklu vaknar lögreglufulltrúinn Karen Eiken Hornby grúttimbruð á hótelherbergi og veit það eitt að hún verður að koma sér burt áður en maðurinn sem hrýtur við hlið hennar vaknar. Sama dag finnst kona myrt og Karen stýrir rannsókninni. Það flækir málið óneitanlega að fórnarlambið er fyrrverandi eiginkona yfirmanns Karenar – mannsins sem hún vaknaði hjá um morguninn.

Eftir því sem Karen kafar dýpra kemur fleira upp á yfirborðið og draugar úr fortíðinni gægjast fram. Liggja rætur glæpsins í kommúnu á áttunda áratugnum, sögu Smeed-ættarinnar eða í eiturlyfjaneyslu og afbrotum nútímans? Smám saman tengist Karen ýmsum málsaðilum sterkari böndum og fer að rifja upp eigin fortíð og ástæðu þess að hún hefur reynt að gleyma henni …

Maria Adolfsson hefur hér skapað sögusviðið Doggerland, kunnuglegt og sannfærandi en um leið nýtt og spennandi – uppfullt af áhugaverðum persónum sem lesandann þyrstir í að kynnast betur.

Ísak Harðarson þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 15 klukkustundir og 36 mínútur að lengd. Ólöf Rún Skúladóttir les.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning