Hvíti skugginn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 990 kr.
spinner
Rafbók 2017 490 kr.
spinner

Hvíti skugginn

490 kr.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 990 kr.
spinner
Rafbók 2017 490 kr.
spinner

Um bókina

Hefur veraldarvefurinn tekið við hlutverki skriftastólsins? Hvaða áhrif hafa spádómar á fólk sem lifir og hrærist í heimi tækni og tölvusamskipta? Getur flug hrafna og táknmál spila kennt okkur að ráða í framtíðina? Slíkar spurningar leita á lesanda þessarar nýju skáldsögu Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur.

Hér segir af þeim Sólveigu, Kristrúnu og Jóhannesi sem leita aflausnar fyrir syndir fortíðarinnar. Við kynnumst þeim um leið og þau kynnast hvert öðru og í gang fer atburðarás þar sem líf þeirra þriggja fléttast saman á örlagaríkan hátt – og átökin varða líf og dauða.

Þórunn tekst á við samtímann og lýsir samskiptum fólks þar sem Netið skipar sífellt stærra hlutverk sem samskiptamiðill og tjáningarmáti. Um leið má lesa út úr verkinu ákveðið uppgjör við ’68-kynslóðina, horfna drauma hennar og hugsjónir.

 

1 umsögn um Hvíti skugginn

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

BaerinnBrennur_72
1.990 kr.6.190 kr.

INNskráning

Nýskráning