Íslenskar lækningajurtir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 302 4.690 kr.
spinner

Íslenskar lækningajurtir

4.690 kr.

Íslenskar lækningajurtir
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2011 302 4.690 kr.
spinner

Um bókina

Í þessari handhægu bók er gert grein fyrir lækningamætti íslenskra jurta og úrvali erlendra lækningajurta sem nálgast má hér á landi.

Vissir þú að…

  • beitilyngste er frábært gegn svefnleysi?
  • gleym-mér-ei er góð á brunasár?
  • ilmreyr nýtist vel gegn frjókornaofnæmi?
  • söl virkar vel við timburmönnum?

Fjallað er um einkenni jurtanna og hvar þær er að finna, hvaða hlutar þeirra nýtast best til lækninga, virk efni í þeim og áhrif þeirra á mannslíkamann og gegn hvaða kvillum jurtalyf hafa reynst best. Auk þess prýða bókina á þriðja hundrað ljósmyndir í lit af öllum jurtum. Þá er hinum fornu fræðum kínverskra jurtalækninga gerð skil og þau tengd við jurtirnar sem fjallað er um í bókinni.

Íslenskar lækningajurtir kom fyrst út fyrir um 20 árum og hefur verið endurútgefin nokkrum sinnum óbreytt enda verið feikilega vinsæl. Nú kemur bókin út í nýrri mynd, rækilega uppfærð og endurskoðuð með viðbót um kínverskar lækningar.

Höfundur bókarinnar, Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nam grasalækningar og síðar kínverskar lækningar og nálastungulækningar á Englandi. Hún hefur starfað við grasa- og nálastungulækningar hér á landi og erlendis um árabil.


*****

„Bók Arnbjargar Lindu er mikill kostagripur um græðandi jurtir og gefandi. [Bókin er] skýr og skilmerkilegur leiðarvísir.“

Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning