Jónína Leósdóttir

Léttir í fyrsta sæti!

Bók Jónínu Leósdóttur Léttir – hugleiðingar harmonikkukonu er mest selda bókin í Eymundsson þessa vikuna. Bókin er í fyrsta sæti metsölulistans eftir eingöngu eina viku í sölu. Það er því ljóst að margir hafa áhuga á megrunarkúr Jónínu Leós en bókin spannar dagbók Jónínu í eitt ár á meðan hún var í stífri megrun og losaði sig við heil 30 kíló.

Dagbókin er í senn fræðandi, hvetjandi og hugleiðingar Jónínu eru ekki síður fyndnar. Maður má nú ekki alveg tapa gleðinni þótt maður sé í megrun!


INNskráning

Nýskráning