Leyndarmál Tapasbarsins

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 214 6.190 kr.
spinner

Leyndarmál Tapasbarsins

6.190 kr.

Leyndarmál Tapasbarsins
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 214 6.190 kr.
spinner

Um bókina

Hér eru yfir 200 girnilegar uppskriftir, unaðslegir smáréttir en einnig gómsætir aðalréttir, súpur og sósur, dásamlegir eftirréttir og ljúffengir drykkir. Í bókinni eru mörg af best geymdu leyndarmálum Tapasbarsins afhjúpuð svo að nú getur þú skapað réttina í eigin eldhúsi og laðað fram sannkallaða tapasstemningu með blöndu af því besta úr spænskri og íslenskri matargerð. Tapasbarinn hefur verið einn vinsælasti veitingastaður Reykjavíkur allt frá opnun árið 2000, enda hafa þar jafnan verið á boðstólum einstaklega spennandi réttir, bornir fram í sönnum tapasanda.

Lamb í lakkrís · Hrefna með trönuberja- og maltsósu · Piri-piri-kjúklingavængir · Lundi með bláberja- og brennivínssósu · Nautalund á salatbeði · Saltfiskur með tómatdöðlumauki og chorizo · Saltfiskkrókettur með alioli · Hvítlauksbakaðir humarhalar · Paella Catalana · Beikonvafin hörpuskel og döðlur · Spænsk eggjakaka · Belgískar vöfflur með uxahala · Sjávarréttasúpa skipstjórans · Calamari · Súkkulaðifantasía með vanillufroðu · Créme Catalana með dulce de leche-rjóma · Hægelduð svínasíða með rauðkáli og fjallagrasasósu · Saltfiskur með sætri kartöflumús og pestói · Mojitos og sangríur …

* * * *
„Opnun Tapasbarsins í Hlaðvarpanum var mikil tíðindi í íslenskri veitingasögu, því ekki er bara að þar var kominn fyrsti spænski veitingastaðurinn hér á landi heldur varð hann fljótlega þekktur fyrir frumlegan og forvitnilegan mat … Uppskriftirnar eru misflóknar, sumar nánast fyrir byrjendur, en aðrar fyrir lengra komna, og bókin hentar því öllum.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning