Litir íslenska hestsins

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2006 - 3.102 kr.

Litir íslenska hestsins

3.102 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2006 - 3.102 kr.

Um bókina

Litadýrð íslenska hestakynsins er einstakur fjársjóður sem hrossaræktendur hafa borið gæfu til að halda við og hlúa að. Hestafólki er þó oft vandi á höndum þegar kemur að því að greina liti og litbrigði rétt og skilja erfðir litanna.

Í þessari bók er loksins komið til móts við þarfir hestafólks fyrir skýrt, greinargott og heildstætt yfirlit yfir alla liti og litbrigði íslenska hrossastofnsins. Höfundurinn, Friðþjófur Þorkelsson, hefur af fádæma elju og þolinmæði unnið áratugum saman að því að ljósmynda alla liti og öll litbrigði sem þekkt eru. Þetta er dæmalaust þrekvirki því fá hestakyn státa af jafnmikilli fjölbreytni í litum og það íslenska. Sjáldgæfum afbrigðum er gefinn sérstakur gaumur og fylgt er þróun lita frá folaldsaldri til fullorðinsára, sem er ómetanlegt fyrir alla sem vilja átta sig á framtíðarlitum folalda.

Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, ritar formála og vísindalega ráðgjöf veitti Dr. Anne Phaff Ussing líffræðingur.

Bókin er á fjórum tungumálum: íslensku, ensku, þýsku og dönsku.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning