Ljónið

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 410 3.490 kr.
spinner
Innbundin 2018 410 4.290 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 1.990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Ljónið

990 kr.4.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2021 410 3.490 kr.
spinner
Innbundin 2018 410 4.290 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 1.990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2018 990 kr.
spinner

Um bókina

Kría er að byrja í MR. Þar þekkir hún engan og enginn veit um það sem gerðist á Akureyri. Hún hefur litlar væntingar en kynnist Elísabetu, og þrátt fyrir strangt nám er menntaskólalífið frábært.

Þegar Elísabet finnur gamalt skrín í földum skáp fara þær Kría að rannsaka undarlegt mál stúlku sem hvarf sporlaust fyrir 79 árum. Kría hittir líka hinn dularfulla Davíð sem kemur og fer eins og kötturinn. Brátt kemur svo í ljós að hvarf stúlkunnar gæti haft óvænta tengingu við líf Kríu.

Ljónið er fyrsta bók í nýjum þríleik eftir margfaldan verðlaunahöfund; hörkuspennandi ungmennasaga sem gerist í samtímanum en teygir anga sína aftur til ógnvekjandi atburða í fortíðinni.

Hildur Knútsdóttir sló rækilega í gegn með bókum sínum Vetrarfrí og Vetrarhörkur sem þýddar hafa verið á fjölmörg tungumál og verið er að gera sjónvarpsþáttaröð eftir. Fyrir þá fyrri fékk Hildur Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þá síðari.

 

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 9 klukkustundir að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning