Missir besta bók ársins 2010

Nóvella Guðbergs Bergssonar, Missir, var á dögunum valin besta bók ársins 2010 af gagnrýnendum Morgunblaðsins, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Árna Matthíassyni. Í annað sætið völdu þau skáldsögu Braga Ólafssonar, Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson en í það þriðja ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Blóðhófni. Fjórða hnossið hreppti síðan ævisaga Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson. Í sjötta sætið tylltu þau Dýrunum í Saigon, skáldsögu Sigurðar Guðmundssonar sem einnig hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna líkt og hinar þrjár síðustu og í það níunda smelltu þau stallsystkin Furðuströndum Arnaldar Indriðasonar.




INNskráning

Nýskráning