Nornin: Fjällbacka-serían #10

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 718 3.690 kr.
spinner

Nornin: Fjällbacka-serían #10

3.690 kr.

Nornin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 718 3.690 kr.
spinner

Um bókina

Þegar hin fjögurra ára gamla Linnea hverfur frá bóndabýli rétt utan við Fjällbacka vekur það sárar minningar. Þrjátíu árum fyrr hvarf stúlka frá sama býli og fannst síðar myrt. Tvær þrettán ára vinkonur játuðu á sig verknaðinn. En frömdu þær í rauninni morðið?

Og er það tilviljun að Linnea hverfur á sama tíma og önnur stúlkan er nýkomin heim á fornar slóðir, nú heimsfræg leikkona?

Patrik Hedström og kollegar hans á lögreglustöðinni í Tanumshede komast ekki hjá því að kanna hvort þessi tvö mál tengist, þótt þeim finnist það langsótt skýring. Þeir fá aðstoð frá Ericu Falck, sem hefur nokkru áður hafist handa við undirbúning bókar um gamla morðmálið. Rannsóknin ýfir upp gömul sár og sögur fara á kreik. Ótti heimafólks við fortíðina og hið ókunna hefur skelfilegar afleiðingar í för með sér.

Tíunda og magnaðasta bókin í Fjällbacka-seríunni.

Camilla Läckberg er sannkölluð drottning evrópskra spennu-bóka. Hún hefur notið fádæma vinsælda fyrir sakamálasögur sínar um hjónin Ericu Falck rithöfund og Patrik Hedström lögreglumann. Bækur hennar hafa selst í meira en fimmtán milljónum eintaka í yfir fimmtíu löndum um allan heim.

Sigurður Þór Salvarsson þýddi.

Tengdar bækur

gauksunginn
4.290 kr.
GATAN
4.090 kr.
kassinn
4.290 kr.
Ofur Kalli og bakteríuskrímslin
3.290 kr.
Silfurvængir
3.290 kr.
Ofur-Kalli og dularfulla ömmuhvarfið
3.490 kr.
Gullbúrið
3.490 kr.
Ljónatemjarinn: Fjällbacka-serían #9
2.790 kr.
Englasmiðurinn: Fjällbacka-serían #8
2.390 kr.2.590 kr.
Vitavörðurinn: Fjällbacka-serían #7
2.590 kr.
Hafmeyjan: Fjällbacka-serían #6
2.590 kr.

INNskráning

Nýskráning