Ofsi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 990 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 1.990 kr. Setja í körfu
Kilja 2009 2.375 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Ofsi

990 kr.2.375 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 990 kr.
spinner
Hljóðbók - streymi 2020 App 1.990 kr. Setja í körfu
Kilja 2009 2.375 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Um bókina

Í fornsögum Einars Kárasonar, fyrst Óvinafagnaði og nú Ofsa, stíga persónur róstutíma Sturlungaaldarinnar fram í stærð sinni og smæð og segja hug sinn. Einar hefur einstakt lag á að miðla efninu þannig að auðvelt er að lifa sig inn í atburði, skilja og skynja. Ofsi er saga sem vekur í senn áhuga á skrautlegum flækjum og persónum þjóðarsögunnar og færir lesendur inn í hringiðu átakanna; sálarkeröld mannfólksins.

Sögusviðið er Ísland á þrettándu öld: Gissur Þorvaldsson snýr breyttur maður heim úr Noregsför; fús til sátta við erkióvini sína, Sturlungana, eftir áralangan ófrið. Þeir efast um heilindi hans en sannfærast þegar Gissur leggur til að sonur hans kvænist stúlku af ætt Sturlunga. Fjölmenni er boðið til brúðkaupsveislu að Flugumýri þar sem innsigla á friðinn. Ekki mæta þó allir sem boðið var. Eyjólfur ofsi glímir bæði við stórlynda eiginkonu og stríða lund: Í vígahug, með svarta hunda á hælunum, ríður hann með flokk manna að Flugumýri í veislulok; nýsaminn friður er ekki allra …

Einar Kárason hefur um árabil verið meðal vinsælustu höfunda landsins og skrifað fjölda skáldsagna en einnig smásögur, ferðasögur, ævisögur, ljóð, greinar, barnabækur, leikverk og kvikmyndahandrit. „Eyjabækur“ Einars, Þar sem djöflaeyan rís og Gulleyjan, náðu á sínum tíma óheyrðum vinsældum og urðu uppistaðan í leikriti og síðar kvikmynd. Einar hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. tvívegis Menningarverðlaun DV og endurteknar tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Sögur Einars hafa verið gefnar út á mörgum tungumálum. Úrvalsbók með ýmsum helstu verkum hans var gefin út 2007. Í Ofsa glímir hann við efni frá Sturlungaöld, líkt og í Óvinafagnaði sem út kom 2001 og hefur notið  mikilla vinsælda æ síðan, og í Skáldi (2012) og Skálmöld (2014).

Einar Kárason hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2008 fyrir Ofsa.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Höfundur les.

Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

5 umsagnir um Ofsi

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

3.690 kr.4.290 kr.
990 kr.1.990 kr.
990 kr.1.990 kr.
3.690 kr.3.990 kr.
2.990 kr.3.690 kr.
Gulleyjan
990 kr.1.290 kr.
Þar sem djöflaeyjan rís
1.290 kr.
990 kr.1.490 kr.
990 kr.1.490 kr.
Málsvörn
1.990 kr.2.990 kr.
Stormur
990 kr.1.490 kr.
Mér er skemmt
990 kr.3.100 kr.

INNskráning

Nýskráning