Guðbergur Bergsson

Svanurinn hlýtur styrk

Kvikmyndaútgáfa Svansins eftir Guðberg Bergsons, sem Ása Helga Hjörleifsdóttir vinnur að þessa dagana, hlaut í gær styrk í Berlín.

Ása Helga var ein þrigga sem í gær hlutu styrk á Berlinale Co-Production Market til þess að þróa áfram verkefni sín. Hátíðin er haldin til þess að kynna kvikmyndaverkefni fyrir meðframleiðendum sem hefur að sögn Ásu gengið framar vonum.

Svanurinn hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin þegar hún kom út árið 1991 og hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála. Nú síðast var bókin gefin út í sérlega fallegri útgáfu í Tyrklandi.

INNskráning

Nýskráning