Ólafur Gunnarsson

Tröllakirkja á arabísku

Animar, forlag í Egyptalandi, hefur keypt útgáfuréttinn á skáldsögu Ólafs Gunnarssonar Tröllakirkju. Bókin mun verða þýdd á arabísku og koma út þar ytra á næsta ári.

Tröllakirkja kom fyrst út á Íslandi árið 1992 og er efnismikil og dramatísk skáldsaga þar sem spurt er um sektina og fyrirgefninguna, manninn og Guð. Tröllakirkja var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1992 og hinna alþjóðlegu IMPAC verðlauna árið 1997. Einnig gerði Þórunn Sigurðardóttir leikgerð upp úr sögunni og var hún frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins vorið 1996.


INNskráning

Nýskráning