Áslaug Jónsdóttir og Arndís Þórarinsdóttir hljóta Vorvinda viðurkenningu

IBBY á Íslandi veitti Áslaugu Jónsdóttur og Arndísi Þórarinsdóttur Vorvinda viðurkenningu 2021 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.

Áslaug Jónsdóttir, mynd- og rithöfundur hlaut Vorvinda fyrir framlag hennar til bókmennta fyrir yngstu kynslóðina. Þá sérstaklega fyrir myndversið Sjáðu! þar sem lesendur fylgja börnum um ævintýralega veröld í bundnu máli með fallegum myndlýsingum.

Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur, fékk viðurkenningu fyrir að hafa síðastliðinn áratug sannað sig sem einn okkar fremsti barnabókahöfundur. Hún hefur einnig skipað stóran sess á sviði barnabókmennta með lestarhvatningu ýmiskonar og er öflug talskona barnabókmennta í umræðunni á Íslandi.

INNskráning

Nýskráning