Thor Vilhjálmsson

Thor Vilhjálmsson 85 ára

Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson fagnaði 85 ára afmæli fimmtudaginn 12. ágúst sl.  Af því tilefni  endurútgefur Mál og menning bók Thors um annan andans jöfur, Jóhannes Kjarval. Bók sú, sem fyrst kom út árið 1964 hefur verið ófáanleg um langa hríð. Útkomu bókarinnar og afmælinu verður fagnað föstudaginn 20. ágúst nk. í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18, milli kl. 17-19. Verið velkomin.

INNskráning

Nýskráning