Bíó Paradís

Höfundar Forlagsins lesa í Bíó Paradís

Næstu tvö þriðjudagskvöld, á morgun þann 10. desember og 17. desember, stendur Bíó Paradís fyrir flottri upplestrar dagskrá í húsakynnum sínum á Hverfisgötu. Það verður sannkölluð jólastemmning í anddyri bíósins og boðið verður upp á smákökur og konfekt auk þess sem hægt verður að fá rjúkandi kaffi, kakó og ískaldan jólabjór í veitingasölunni.

Við hvetjum lesendur til þess að fjölmenna á upplestrana en höfundar Forlagsins eru: Árni Þórarinsson, Björg Magnúsdóttir, Sigrún Pálsdóttir, Halldór Armand Ásgeirsson og Vigdís Grímsdóttir.

Dagskrána í heild sinni má sjá hér.


INNskráning

Nýskráning