Ævar Þór Benediktsson er fæddur árið 1984. Hann útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan leikið bæði á sviði og í sjónvarpsþáttum en einnig framleitt sitt eigið efni fyrir útvarp og sjónvarp, meðal annars undir merkjum Ævars vísindamanns.
Frumraun Ævars á ritvellinum var smásagnasafnið Stórkostlegt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólki sem kom út árið 2010 en frá 2011 hefur hann einbeitt sér að barna- og unglingabókum og er einn vinsælasti og afkastamesti höfundur landsins á því sviði. Útgefin verk hans nálgast nú fjórða tuginn.
Ævar hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar og framlag sitt til barnamenningar. Fyrsta bókin í Þín eigin-bókaflokki hans, Þín eigin þjóðsaga, hlaut Bókaverðlaun barnanna og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Vélmennaárásin og Þitt eigið ævintýri voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og sú síðarnefnda einnig til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Risaeðlur í Reykjavík komst á blað bandarísku verðlaunanna DeBary Children’s Science Book Award sem sérhæfa sig í vísindabókum fyrir börn. Fyrir bandarísku útgáfuna af bókinni Strandaglópar! (Næstum því) alveg sönn saga voru Ævari veitt heiðursverðlaun hinna virtu Margaret Wise Brown-barnabókaverðlauna en bókin hefur auk þess hlotið fjölda annarra viðurkenninga þar í landi. Fyrir Skólastjórann hlaut hann Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur.
Fimm ár í röð stóð Ævar fyrir vinsælu lestrarátaki meðal íslenskra barna en fyrir framtakið var hann tilnefndur til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna, minningaverðlauna um Astrid Lindgren.
Bækur Ævars hafa komið út í Bandaríkjunum, Danmörku, Svíþjóð, Rússlandi og Eistlandi.
