Heimili höfundanna

Einar Kárason
Einar Kárason
Einar Kárason er fæddur í Reykjavík 1955. Hann varð stúdent frá MT árið 1975 og stundaði bókmenntafræðinám við Háskóla Íslands. Jafnframt vann hann ýmis störf til sjós og lands, bjó síðan í Danmörku í nokkur ár og skrifaði þar fyrstu skáldsögur sínar; hefur verið rithöfundur að atvinnu síðan. Einar birti ljóð á árunum 1978–1980 og 1981 kom út fyrsta skáldsaga hans, Þetta eru asnar Guðjón. Tveimur árum síðar kom fyrsta bókin í þríleiknum um lífið í reykvísku braggahverfi á eftirstríðsárunum, Þar sem djöflaeyjan rís, en á eftir fylgdu Gulleyjan og Fyrirheitna landið. Þessar sögur urðu gríðarlega vinsælar og hafa orðið kveikja að leikriti, kvikmynd og söngleik. Auk fjölda annarra skáldsagna hefur Einar sent frá sér aðrar bækur af ýmsu tagi: smásagnasöfn, ferðaþætti, ljóð, viðtalsbækur og barnabækur. Eins hefur hann, ásamt Friðriki Þór Friðrikssyni, skrifað kvikmyndahandrit, m.a. upp úr Eyjabókunum sínum fyrir myndina Djöflaeyjuna sem naut mikillar velgengni, en Friðrik Þór leikstýrði. Einar hefur verið meðal ástsælustu höfunda landsins í áratugi og hlotið ótal viðurkenningar á ferlinum. Skáldsögurnar Gulleyjan (1987), Heimskra manna ráð og Kvikasilfur (1996) og Stormur (2004) voru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs; Fyrirheitna landið (1989), Kvikasilfur (1994), Stormur (2004) og Ofsi (2008) til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Einar hlaut þau verðlaun fyrir síðastnefndu bókina sem er ein fjögurra skáldsagna hans sem fjalla um sögulega atburði 13. aldar, en þessi rómaði sagnabálkur þykir hafa endurvakið áhuga á Sturlungaöld. Bálkurinn hófst með Óvinafagnaði (2001) en á eftir Ofsa (2008) komu Skáld (2012) og Skálmöld (2014). Einar er mikill sagnamaður og sögur hans eru kraftmiklar, ýmist fyndnar eða harmrænar; sögupersónurnar eftirminnilegar. Skáldsögur hans hafa verið þýddar á mörg tungumál og komið út víða um lönd. Stormfuglar, skáldsaga sem kom út 2018 og fjallar um íslenska sjómenn í sjávarháska, hefur til að mynda vakið mikla athygli utan landsteinanna og unnið til verðlauna. Sunday Times valdi hana bók ársins 2020 í flokki þýddra skáldverka.

Bækur eftir höfund

Þetta eru asnar Guðjón
Þetta eru asnar Guðjón
990 kr.1.490 kr.
Skald_kilja
Skáld
990 kr.3.310 kr.
Djöflaeyjan
Djöflaeyjan
2.290 kr.
Skálmöld
Skálmöld
990 kr.3.390 kr.
attachment-10587
Endurfundir
990 kr.1.490 kr.
Einar Kárason Úrvalsbók
Einar Kárason úrvalsbók +CD
2.590 kr.3.620 kr.
attachment-12275
Úti að aka
990 kr.1.545 kr.
attachment-12270
Jónsbók
720 kr.
attachment-10785
Killiansfólkið
990 kr.
attachment-16259
Hvar frómur flækist
1.340 kr.
attachment-605074
Norðurljós
990 kr.1.990 kr.
Kvikasilfur
Kvikasilfur
690 kr.1.490 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning