Heimili höfundanna

Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir
Guðrún Helgadóttir fæddist í Hafnarfirði þann 7. september 1935 og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Hún gaf út sína fyrstu bók, Jón Odd og Jón Bjarna, árið 1974 tæplega fertug að aldri og hefur upp frá því verið einn vinsælasti og virtasti barnabókahöfundur Íslands. Síðan hefur Guðrún sent frá sér á þriðja tug bóka sem þúsundir íslenskra barna hafa alist upp við og notið. Helsti styrkur Guðrúnar sem rithöfundar felst að mati gagnrýnenda í þeirri virðingu sem hún ber fyrir börnum jafnframt því að geta séð spaugilegar hliðar á flestum málum. Verk hennar hafa verið þýdd á níu tungumál í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Bækur Guðrúnar hafa hlotið góða dóma heima og erlendis þar sem menn hafa skipað henni á bekk með barnabókahöfundum á borð við Astrid Lindgren, Thorbjörn Egner og Anne-Cath. Vestly. Árið 2005 kom út safn greina um verk Guðrúnar Helgadóttur eftir ýmsa fræðimenn undir heitinu Í Guðrúnarhúsi. Guðrún Helgadóttir hefur hlotið ýmiss konar verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín. Árið 1992 fékk hún Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Undan illgresinu, árið 1994 Barnabókaverðlaun skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir Litlu greyin, árið 2005 fékk hún Bókaverðlaun barnanna fyrir bókina Öðruvísi fjölskylda og síðar sama ár Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.

Bækur eftir höfund

Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur
Öðruvísi fjölskylda
1.795 kr.
attachment-16768
Oddaflug
1.795 kr.2.190 kr.
Meira af Jón Oddi og Jón Bjarni
Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna
1.490 kr.2.590 kr.
Aldrei að vita eftir Guðrúnu Helgadóttur
Aldrei að vita!
1.490 kr.
EnnAfJoniOddiOgJoniBjarna
Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna
1.390 kr.1.490 kr.
Jón Oddur og Jón Bjarni
Jón Oddur og Jón Bjarni
1.490 kr.2.875 kr.
attachment-113305
Ekkert að þakka
990 kr.
Ruska - en kjærlighetshistorie fra Island
Ruska - en kjærlighetshistorie fra Island
3.390 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning