Heimili höfundanna

Halldór Baldursson
Halldór Baldursson
Halldór Baldursson er fæddur árið 1965 og hefur myndskreytt á annað hundrað barna- og kennslubóka auk þess sem hann teiknar reglulega skopmyndir í bæði Fréttablaðið og Viðskiptablaðið sem oftar en ekki fela í sér flugbeitta samfélagsrýni. Hann er einn af forvígismönnum teiknimyndasögublaðsins GISP og kennir myndskreytingu við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík. Bækur með myndum Halldórs hafa fengið margs konar verðlaun og viðurkenningar. Bók þeirra Margrétar Tryggvadóttur, Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin; bækurnar um Fíusól hafa meðal annars hlotið Bókaverðlaun barnanna og sú síðasta var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fyrir Sjúklega súra sögu (2018) var Halldór tilnefndur til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur fyrir myndskreytingar. Meðal bóka sem Halldór hefur myndskreytt er bókaflokkurinn um Fíusól og fleiri verk eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Bessastaða-bækurnar og fleiri bækur eftir Gerði Kristnýju, þjóðsagnasafnið Köttur út í mýri og fleiri bækur með þjóðlegu efni, Sagan af húfunni fínu og fleiri sögur eftir Sjón, Ljótasti fiskur í heimi og fleiri bækur eftir Árna Árnason, Allir með strætó og fleiri bækur eftir Guðberg Bergsson, Djúpríkið eftir Bubba Morthens og Robert Jackson, og þannig mætti lengi telja.

Bækur eftir höfund

attachment-600775
Talnageitungurinn
1.390 kr.
attachment-600778
Ferðageitungurinn
1.390 kr.
attachment-600769
Geitungurinn 4
1.390 kr.
attachment-600766
Geitungurinn 3
1.390 kr.
attachment-603117
Geitungurinn 1
1.390 kr.
attachment-600763
Geitungurinn 2
1.390 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning