Heimili höfundanna

Hans Hansen
Hans H. Hansen
Hans Hjálmar Hansen fæddist í Vestmannaeyjum árið 1961. Hann lauk stúdentsprófi frá ML árið 1981 og prófi í Landafræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Hann hóf störf hjá Loftmyndadeild Landmælinga Íslands sama ár og var gerður að forstöðumanni kortadeildar stofnunarinnar árið 1994. Árið 1996 varð Hans yfirkortagerðarmaður Náttúrufræðistofnunar Íslands og árið 2000 tók hann við kortadeild Verkfræðistofunnar Hnit hf. Hans hóf aftur störf hjá Náttúrufræðistofnun árið 2010, samhliða því að vera sjálfstætt starfandi kortagerðarmaður. Hans fékk gullverðlaun fyrir Náttúrufarskort Náttúrufræðistofnunar (jarðfræði-, höggunar- og gróðurkort) á alþjóðlegri kortaráðstefnu árið 1998. Sömu verðlaun fékk hann fyrir fjórðungskort Máls og menningar árið 1999 og ári síðar fyrir Kortabók Íslands. Árið 2006 fékk Hans þrenn alþjóðleg verðlaun fyrir Íslandsatlas Máls og menningar.

Bækur eftir höfund

attachment-567149
Atlaskort - askja með 31 korti í 1:100 000
39.990 kr.

No results found.

INNskráning

Nýskráning