Íslensku barnabókaverðlaunin 2019 – Dómnefnd komin að niðurstöðu!

Fjölmörg frábær handrit bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin í ár. Nú hefur dómnefnd lokið störfum og valið það handrit sem kemur út undir merkjum verðlaunanna í haust.

Búið er að láta verðlaunahafann vita en nafnið verður ekki gert opinbert fyrr en verðlaunin verða veitt í október.
Aðrir sem sendu handrit í samkeppnina mega sækja þau á skrifstofu Forlagsins að Bræðraborgarstíg 7. Handritin verða geymd til 1. júní 2019, en verður síðan fargað.

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka þakkar öllum þátttökuna og áhugann.


INNskráning

Nýskráning