Íslensku barnabókaverðlaunin

Íslensku barnabókaverðlaunin – Handrit óskast!

[fusion_builder_container hundred_percent=“no“ equal_height_columns=“no“ menu_anchor=““ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ class=““ id=““ background_color=““ background_image=““ background_position=“center center“ background_repeat=“no-repeat“ fade=“no“ background_parallax=“none“ enable_mobile=“no“ parallax_speed=“0.3″ video_mp4=““ video_webm=““ video_ogv=““ video_url=““ video_aspect_ratio=“16:9″ video_loop=“yes“ video_mute=“yes“ video_preview_image=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ margin_top=““ margin_bottom=““ padding_top=““ padding_right=““ padding_bottom=““ padding_left=““][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_3″ layout=“1_3″ spacing=““ center_content=“no“ hover_type=“none“ link=““ min_height=““ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ class=““ id=““ background_color=““ background_image=““ background_position=“left top“ background_repeat=“no-repeat“ border_size=“0″ border_color=““ border_style=“solid“ border_position=“all“ padding=““ dimension_margin=““ animation_type=““ animation_direction=“left“ animation_speed=“0.3″ animation_offset=““ last=“no“][fusion_imageframe image_id=“87489″ style_type=“none“ stylecolor=““ hover_type=“none“ bordersize=““ bordercolor=““ borderradius=““ align=“none“ lightbox=“no“ gallery_id=““ lightbox_image=““ alt=““ link=““ linktarget=“_self“ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_direction=“left“ animation_speed=“0.3″ animation_offset=““]http://www.forlagid.is/wp-content/uploads/2017/12/isl_barnabok.jpg[/fusion_imageframe][/fusion_builder_column][fusion_builder_column type=“2_3″ layout=“2_3″ spacing=““ center_content=“no“ hover_type=“none“ link=““ min_height=““ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ class=““ id=““ background_color=““ background_image=““ background_position=“left top“ background_repeat=“no-repeat“ border_size=“0″ border_color=““ border_style=“solid“ border_position=“all“ padding=““ dimension_margin=““ animation_type=““ animation_direction=“left“ animation_speed=“0.3″ animation_offset=““ last=“no“][fusion_text]

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu fyrir börn og unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2018.

Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd, miðað við til dæmis grunnstillingu í Word. Skilafrestur er til og með 22. febrúar 2018. Handritið á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar á að fylgja með í lokuðu umslagi.

Handritum skal skila í fjórum eintökum til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka

Forlagið

Bræðraborgarstíg 7

101 Reykjavík


Að Íslensku barnabókaverðlaunum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi. Dómnefnd skipuð fulltrúum þessara aðila, auk tveggja nemenda úr 8. bekk, velur sigurhandritið sem kemur út hjá Forlaginu haustið 2018. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna.

Þegar dómnefnd hefur komist að niðurstöðu er umslag með réttu nafni höfundarins opnað og hann látinn vita. Tilkynning um að niðurstaða liggi fyrir birtist þá á heimasíðu Forlagsins og aðrir höfundar mega sækja handrit sín innan hálfs árs, að þeim tíma liðnum er öllum handritum fargað. Verðlaunasjóðurinn áskilur sér rétt til að veita ekki verðlaunin ef ekkert handrit berst sem uppfyllir kröfur dómnefndar.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt í rúm 30 ár og undanfarin ár hefur metfjöldi handrita borist. Það ber vott um mikla grósku í skrifum fyrir börn og unglinga sem allt bókafólk hlýtur að fagna.

Frekari upplýsingar má finna hér.

[/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning