Ný bók um Maxímús

Músin Maxímús sló í gegn þegar bókin Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina kom út fyrir tveimur árum. Nú er von á nýrri bók,  Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann, en hún kemur út í næstu viku – ásamt diski með nýrri tónlist sem Maxi kynnist í þetta sinn.

Þá heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands líka tvenna tónleika laugardaginn 17. apríl nk.  þar sem sagan verður flutt í tali og tónum. Það er um að gera tryggja sér miða strax, það er allt að seljast upp! Sjá nánar á vef Sinfó!

INNskráning

Nýskráning