Vilt þú starfa á ritstjórn Forlagsins?
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á bókum af öllu tagi.
- Góð íslenskukunnátta og máltilfinning er skilyrði, og kunnátta í öðrum tungumálum mikill kostur.
- Reynsla af textavinnslu er nauðsynleg og þekking á ritvinnsluforritum æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfileikar og geta til að halda um marga þræði eru mikilvægir eiginleikar.
- Lagni í mannlegum samskiptum er lykilatriði.
Um er að ræða krefjandi og gefandi starf á frábærum vinnustað.
Vinsamlegast sendið umsóknina á: atvinna@forlagid.is fyrir 23. mars nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.