Andóf

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 497 2.190 kr.
spinner

Andóf

2.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2014 497 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Chicagoborg framtíðarinnar þar sem þjóðfélaginu er skipt í fimm fylki. Fimm gjörólík lífsgildi, venjur og siðir. Bersögli – hin hreinskilnu Ósérplægni – hin óeigingjörnu Hugprýði – hin hugrökku Samlyndi – hin friðsælu Fjölvísi – hin vitru Óróleikinn milli fylkjanna vex stöðugt. Árekstrar hugmyndafræði þeirra verða sífellt tíðari og ofbeldisfyllri og stríð virðist óumflýjanlegt. Til þess að lifa af hrottafengna árás á fjölskyldu sína og fyrrverandi heimkynni þurfti Tris Prior að gera hræðilega hluti sem hún á erfitt með að sætta sig við. Vegna nagandi sektarkenndar og óbærilegrar sorgar yfir þeim sem hún hefur misst verður hegðun hennar sífellt glæfralegri. Til að komast að sannleikanum um samfélagið sem hún býr í þarf Tris að átta sig á því hvað felst í því að vera Afbrigði. Hún þarf á öllum sínum styrk að halda … því framundan eru erfiðar ákvarðanir.

Tengdar bækur

2.190 kr.
2.190 kr.

INNskráning

Nýskráning