Artemis Fowl – Tímaþversögn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 990 kr.
spinner

Artemis Fowl – Tímaþversögn

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 990 kr.
spinner

Um bókina

Artemis Fowl – tímaþversögnin eftir Eoin Colfer er sjötta bókin í þessum æsispennandi bókaflokki. Artemis Fowl er enginn venjulegur drengur og lendir stöðugt í svæsnum ævintýrum. En þegar móðir hans veikist hastarlega eru góð ráð dýr. Hún skyldi þó aldrei hafa smitast af galdratæringu?

Artemis leggur allt í sölurnar til að bjarga móður sinni og þótt það kosti furðulegt ferðalag aftur í tímann og ómældar raunir gefst hann aldrei upp. Eina meðalið sem getur komið móður hans til bjargar er nefnilega heilavökvi úr útdauðri skepnu, silkilemúranum.

Samtök aldrauðasinna, með doktor Kronski í fararbroddi, og ýmis undarleg öfl reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir að Artemis nái lemúranum, og allt bendir til að það muni takast. Artemis virðist hafa heppnina með sér – en það kemur babb í bátinn!

Karl Emil Gunnarsson þýddi

„Þetta er sjötta bókin sem ég les um Artemis Fowl og alltaf skemmti ég mér jafn vek … Þetta er hörkuævintýri … Eoin Colfer hefur alveg ótrúlegt ímyndunarafl … mér finnst þetta bækur fyrir alla aldurshópa.“
* * * * (fjórar stjörnur)
Helga Magnúsdóttir / DV

[domar]

„Sjötta sagan um Artemis Fowl er óblandin skemmtilesning …
Ef þú hefur ekki lesið hinar fimm ertu að missa af miklu.“
The Scotsman

„Colfer í essinu sínu og blandar saman húmor, göldrum og hröðum og spennandi söguþræði. Snillingur í að halda lesendum í stöðugri spennu.“
Kidsreads.com

[/domar]

Tengdar bækur

990 kr.1.690 kr.
Berserkjahliðið
990 kr.
2.190 kr.

INNskráning

Nýskráning