Áttunda dauðasyndin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 336 1.690 kr.
spinner

Áttunda dauðasyndin

1.690 kr.

Áttunda dauðsyndin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 336 1.690 kr.
spinner

Um bókina

Áttunda dauðasyndin er spennusaga um hluti sem við viljum halda leyndum, um mannlegan breyskleika og skelfileg leyndarmál. Sálartryllir sem rígheldur lesandanum og býður upp á óvænt endalok.

Nóra er vinsæll álitsgjafi, rithöfundur og fyrirlesari. Hún telur lesendum sínum og áheyrendum trú um að allir geti orðið hamingjusamir og náð árangri í lífinu, bara ef þeir vilja og leggja sig fram. Það gerði hún nefnilega sjálf fyrir tíu árum, eftir að hún datt ofan af sjöundu hæð í stigahúsinu heima hjá sér og var næstum dáin. Sjálf man hún bara óljóst eftir þeim atburði.

Einn daginn flytur Klara inn í húsið beint á móti henni og það kemur róti á lífið í hverfinu. Á sama tíma hefst Nóra handa við að skrifa enn eina metsölubókina – um dauðasyndirnar – en það gengur ekki vandræðalaust fyrir sig. Hægt og bítandi eltir fortíðin hana uppi. Kannski var það sem gerðist fyrir tíu árum ekkert slys?

Áttunda dauðasyndin sló heldur betur í gegn í Svíþjóð þegar hún kom út. Rebecka Edgren Aldén er yfirmaður sviðs hugmynda- og skapandi verkefna hjá tímaritaútgáfu Bonnier í Svíþjóð og Áttunda dauðasyndin er hennar fyrsta bók.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning