Blómamánamorðin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 2.990 kr.
spinner

Blómamánamorðin

2.990 kr.

Blómamánamorðin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Blómamánamorðin er æsispennandi sakamálasaga byggð á sönnum atburðum. Í Osage-sýslu í Oklahoma bjó auðugasti hópur fólks í heimi á þriðja áratug 20. aldar. Ástæðan var olía. Eftir að olía fannst undir landi Osage-indíána óku þeir í glæsibifreiðum með einkabílstjóra og bjuggu í lúxusvillum. Innan skamms tóku þeir þó að falla einn af öðrum fyrir morðingjahendi. Þegar fórnarlömbunum hélt áfram að fjölga tók hin nýstofnaða Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) málið upp undir stjórn hins unga og dulráða forstjóra hennar, J. Edgars Hoovers. Hófst þar með afhjúpun eins kaldrifjaðasta samsæris í sögu Bandaríkjanna.

Bókin er byggð á margra ára rannsóknum og óvæntum nýjum heimildum. Hún er meistaralegt sagnfræðiverk þar sem hvert skref í rannsókninni opinberar mörg leyndarmál og sviptingar. Frásögnin um Blómamánamorðin er algjörlega óyggjandi en einnig tilfinningalega átakanleg. Höfundur bókarinnar, David Grann, hefur verið hlaðin lofi og var þessi bók hans til dæmis tilnefnd til bókar ársins 2017 hjá fjölmiðlum eins og Wall Street Journal, The Boston Globe, San Francisco Chronicle, GQ, Time, Entertainment Weekly og Time Magazine.

Herdís M. Hübner þýddi.

INNskráning

Nýskráning