Ég læðist fram hjá öxi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2012 259 1.695 kr.
spinner
Geisladiskur 2013 Mp3 990 kr.
spinner

Ég læðist fram hjá öxi

990 kr.1.695 kr.

Ég læðist framhjá öxi
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2012 259 1.695 kr.
spinner
Geisladiskur 2013 Mp3 990 kr.
spinner

Um bókina

Lýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda áratugnum. Sjónarhornið er hennar og lesandi fylgist með þegar hún upplifir ljúfsár tímamót æsku og unglingsára. Systkinin eru sjö og fjölskyldan þykir „óvenjuleg“; hefur ekki mikið umleikis, faðirinn atvinnulaus sveimhugi en móðirin píanóleikari með brostnar vonir.

Stúlkan hefur mikið og frjótt ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga sér dekkri hlið. Hún skynjar lífið frekar en hún skilji það og þannig fær lesandi nýtt og ferskt sjónarhorn á fjölskyldulíf, ást, umhyggju, drauma og metnað, og ýmislegt annað sem tekst á í huga fólks frá degi til dags.

Ég læðist framhjá öxi lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af, þangað til hún skilur í stað þess að skynja, þangað til hún fullorðnast.

Hjalti Rögnvaldsson íslenskaði.

Bókin var tilnefnd til Norrænu bókmenntaverðlaunanna árið 2000.

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning