Ég stytti mér leið framhjá dauðanum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2006 | 2.405 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Ég stytti mér leið framhjá dauðanum
1.990 kr. – 2.405 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2006 | 2.405 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Þetta er sjötta ljóðabók Einars Más Guðmundssonar. Einar Már er þekkastur fyrir skáldsögur sínar sem hafa notið mikillar hylli bæði hér heima og erlendis en hann sló fyrst í gegn sem ljóðskáld 1980 með bókunum Er nokkur í kórónafötum hér inni? og Sendisveinninn er einmana. Ári síðar kom út Róbinson Krúsó snýr aftur, árið 1991 sendi Einar frá sér ljóðabókina Klettur í hafi sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og árið 1995 kom út Í auga óreiðunnar. Árið 2002 komu þessar fimm bækur út saman í einni bók, Ljóð 1980–1995.
Ég stytti mér leið framhjá dauðanum er tímamótabók frá einu okkar helsta ljóðskáldi, bók sem kallast á við fyrstu ljóðabækur hans í dirfsku og róttækni – og húmor.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 1 klukkustund og 13 mínútur að lengd. Höfundur les.