Eldaðu maður & Grillaðu maður

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 3.390 kr.
spinner

Eldaðu maður & Grillaðu maður

3.390 kr.

Eldaðu og grillaðu maður
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Eldaðu maður og Grillaðu maður eru skemmtilegar og aðgengilegar matreiðslubækur frá Sölku sem eru hér á sértilboði saman.

Eldaðu maður
Bráðskemmtileg matreiðslubók fyrir karlmenn. Bókin er aðgengileg með flottum myndum og geymir ýmis leyndarmál sem breyta venjulegum uppskriftum í heilt ævintýri. Auðveldar uppskriftir að forréttum, aðalréttum og eftirréttum.

Í bókinni eru uppskriftir að forréttum, aðalréttum og eftirréttum.

Fyrst lærir þú nokkra auðvelda rétti og smátt og smátt nærð þú tökum á eldamennsku eins og hún gerist best. Þú lærir að töfra eiginkonuna eða kærustuna (kærastann) upp úr skónum með ekta matseld við öll tækifæri. Þú lærir öll réttu handtökin við sósurnar, skreytingarnar, meðlætið, kryddið, olíurnar, grænmetið, steikinguna, suðuna, hráefnið – en bara það mikilvægasta.

Með því að tileinka þér þekkinguna í þessari bók getur þú tekið að þér að elda fyrir elskuna þína, fjölskylduna, vinahópinn, veiðifélagana og hvern sem er. Bókin opnar þér nýjan heim og gefur þér áræðni til að takast á við enn flóknari uppskriftir og matseld. Helsta ástæða þess að karlmenn elda ekki heima hjá sér er sú að þeim finnst uppskriftir of flóknar.

Í þessari einstöku bók eru einfaldar uppskriftir með einföldum nöfnum sem miðast við hráefni sem fæst í öllum matvöruverslunum.
Einfaldara getur það ekki orðið.

Grillaðu maður

Hér er að finna rjúkandi grillráð sem fjalla um allar hliðar eldamennsku á grilli. Skref fyrir skref lærir þú grundvallaratriðin, skylduverkin og forsendur fyrir gæða-grillmennsku.

Í bókinni eru uppskriftir að gómsætum grillréttum sem auðvelt er að matreiða á gasgrilli eða kolagrilli. Þær gera hvaða karlmanni sem er kleift að elda frábærar máltíðir úr lambakjöti, nautakjöti, kjúklingum, fiski, humri, hamborgurum og grænmeti svo eitthvað sé nefnt.

Þú lærir að heilla elskuna þína og vinahópinn upp úr skónum með ekta matseld við hvers kyns tækifæri – sumar sem vetur – heima, í sveitinni, í veiðiferðinni, við húsvagninn … alls staðar þar sem grill er við höndina.

Bókin opnar þér nýjan heim og veitir þér áræði til að bjóða til grillveislu með öryggið uppmálað. Þínar grillveislur verða framvegis með stæl!

Alvöru grillbók fyrir alvöru karlmenn!

Salka gefur út.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning