Enginn má sjá mig gráta

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.065 kr.
spinner

Enginn má sjá mig gráta

2.065 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 2.065 kr.
spinner

Um bókina

Aron Pálmi Ágústsson var nýorðinn fjórtán ára þegar hann var dæmdur til tíu ára vistar í barna- og unglingafangelsum Texasríkis. Enginn má sjá mig gráta er áhrifamikil frásögn af uppvexti drengs sem hverfur beint úr bernskuleikjum inn í grjótharða og miskunnarlausa veröld fangelsisins og leið hans til að sigrast á aðstæðum sínum.

„Næstu fimm klukkutímar líða hægt. Ég er ennþá á hnjánum því ég þori ekki að hreyfa mig, því ekkert virðist stoppa hann frá því að meiða mig meira. Teppið á gólfinu nagar húðina og það er farið að blæða úr hnjánum.


Þú mátt ekki tala. Þú mátt heldur ekki horfa framan í annað fólk. Þú átt að lúta höfði og borða matinn þinn á fimm mínútum. Héðan í frá heitir þú ekki Aron Pálmi, heldur númer 898648. Ef þú gerir eins og þér er sagt færðu kannski að hitta foreldra þína einu sinni í viku. Ef þú kvartar undan misnotkun og illri meðferð ferðu í fullorðinsfangelsi.“


Átakanleg frásögn af hrikalegri lífsreynslu.






Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning