Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Far heimur, far sæll
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 334 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 334 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Mórar og skottur eru á kreiki innan um litríkar, breyskar og bráðlifandi persónur, og sögumaður fer um í líki hunds sem aðeins sumir sjá – en sér sjálfur allt. Þetta er saga um útskúfun og drauma. Aðdáendur Ófeigs Sigurðssonar þekkja hér sinn mann.
Kveikja þessarar skáldsögu er Kambsránið, eitt frægasta sakamál Íslandssögunnar. Þá brutust fjórir grímuklæddir menn eina vetrarnótt árið 1827 inn á bænum Kambi, bundu og börðu heimilisfólk og rændu verðmætum.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
2 umsagnir um Far heimur, far sæll
embla –
„Tungumálið leikur einstaklega vel í höndum Ófeigs og hér hefur hann sent frá sér vandlega uppbyggða, bráðfyndna og á köflum sótsvarta skáldsögu sem heldur lesandanum á tánum.“
Snædís Björnsdóttir / Morgunblaðið
embla –
„Náttúrulýsingar Ófeigs eru magnaðar, hann dvelur í lýsingunni og upptalningar setja svip á stílinn. Þetta þekkjum við líka úr fyrri skáldsögum hans. Það eru fáir íslenskir rithöfundar sem leika sér að og í tungumálinu á sama hátt og Ófeigur.“
Soffía Auður Birgisdóttir / Víðsjá