Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Freyja Dís sem vildi bara dansa og dansa
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | - | 2.685 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | - | 2.685 kr. |
Um bókina
Einu sinni var stelpa sem hét Freyja Dís og vildi BARA dansa og dansa.
Nema þegar aðrir sáu til.
Þá fóru hnén að skjálfa og maginn í hnút.
Birgitta Sif hefur áður notið mikillar velgengni fyrir fyrstu bók sína Ólíver sem, eins og Freyja Dís, kom fyrst út á ensku. Báðar hafa hlotið afar lofsamlega dóma hjá ýmsum dagblöðum erlendis, s.s. The New York Times.
Fyrir alla þá sem njóta af öllu hjarta.
4 umsagnir um Freyja Dís sem vildi bara dansa og dansa
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Sagan af Freyju Dís fjallar um að þora að njóta lífsins og að vera maður sjálfur, að gera það sem mann langar helst af öllu að gera og að ögra sjálfum sér … Myndskreytingarnar í bókinni eru í djúpum fallegum litum og skapa heillandi, alltumlykjandi heim sem auðvelt er að detta inn í.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntaborgin.is
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„[Myndirnar] eru vandaðar og stútfullar af smáatriðum svo bæði börn og fullorðnir geta gleymt sér á hverri einustu opnu. … Í heildina séð er bókin falleg, frábærar myndir og hugljúfur boðskapur…“
Halla Þórlaug Óskarsdóttir / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Myndheimur Birgittu Sifjar er heillandi og fallegur … Boðskapur sögunnar er fallegur, þ.e. um mikilvægi þess að yfirvinna feimni sína og þora að leyfa öðrum að njóta góðs af listrænum hæfileikum og sköpunarkrafti. Einnig er gaman að sjá börnin læra hvert af öðru.“
Silja Björg Huldudóttir / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ljúf og lillableik saga … Skilaboðin eru skýr: Trúðu á sjálfan þig og gerðu það sem þú nýtur að gera – ekki hafa áhyggjur af því hvað aðrir gætu verið að hugsa.“
Helga Birgisdóttir / DV