Galdrameistarinn 14 – Dóttir frostsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 1.090 kr. | |||
Kilja | 2011 | 247 | 990 kr. |
Galdrameistarinn 14 – Dóttir frostsins
990 kr. – 1.090 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 1.090 kr. | |||
Kilja | 2011 | 247 | 990 kr. |
Um bókina
Dólgur leggur upp í sína síðustu ferð í leitinni að Hinni heilögu sól. Með honum eru systkini hans og Lemúrarnir, að ógleymdum Neró. Leið Þeirra liggur um álagaskóginn Tiveden en þau eru ekki ein á ferð. Í humátt á eftir þeim fara undirförlir regluriddararnir og auk þeirra leynast ýmsar vættir í skóginum. Þau kynnast ungri, dularfullri konu sem á við erfið vandamál að glíma og svo virðist sem kynni þessi muni tefja fyrir för þeirra. En ef til vill er leyndarmál hennar það eina sem getur bjargað þeim þegar á reynar. Galdrameistarinn Móri stendur andspænis riddurum Reglu hinnar heilögu sólar og á bak við hann og börnin bíður banvæn mýrin eftir fórn sinni. Sólin helga er svo nálæg en nú loks þegar þau eru komin á áfangastað virðast vopnin ætla að snúast í höndunum á þeim. Tekst þeim að sigra staðfasta riddarana í eitt skipti fyrir öll? Nær Dólgur að ljúka ætlunarverki sínu hér á jörðinni? Þau uppgötva fljótt að síðustu skrefin til hins ókunna heims eru síst þau auðveldustu.