Gestir utan úr geimnum: bernskubrek Ævars vísindamanns #3
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 237 | 3.390 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gestir utan úr geimnum: bernskubrek Ævars vísindamanns #3
990 kr. – 3.390 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2017 | 237 | 3.390 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Ævar vísindamaður var alveg að verða tólf ára gerðist svolítið hræðilegt: kisinn hans, hann Einstein, hvarf sporlaust. Fljótlega kom í ljós að það var ekki bara Einstein sem var horfinn, heldur öll gæludýr á höfuðborgarsvæðinu!
Og til að gera vont verra brotlenti risastórt geimskip í miðri Öskjuhlíðinni, stútfullt af stórhættulegum geimverum! Eða var það ekki annars?
Bókaflokkurinn um bernskubrek Ævars vísindamanns hefur slegið rækilega í gegn og var meðal annars tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og DeBary-vísindabókaverðlaunanna. Hér halda ævintýrin áfram!
Með bókinni efnir Ævar Þór Benediktsson loforð við þúsundir barna um allt land sem tóku þátt í lestrarátakinu hans og lásu meira en sextíu og þrjú þúsund bækur.
Gerið svo vel, lestrarhestar, hér er ein bók í viðbót!
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 14 mínútur að lengd. Höfundur les.
1 umsögn um Gestir utan úr geimnum: bernskubrek Ævars vísindamanns #3
Árni Þór –
„Sprellfjörug og æsispennandi … stútfull af fróðleik um geiminn og tekur líka á vandamálum sem mörg börn glíma við eins og kvíða og matvendni. Ég naut þess virkilega að lesa fyrri bækurnar tvær … en það verður að segjast að mér finnst Gestir utan úr geimnum vera enn betri … Ævar hefur enn og aftur skrifað frábæra bók …“
Ingveldur Geirsdóttir / Morgunblaðið