Hinir sterku
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 990 kr. |
Um bókina
Hinir sterku (2005) er önnur skáldsaga Kristjáns Þórðar Hrafssonar. Ung kona hefur áunnið sér vinsældir og virðingu fyrir skelegga stjórn á umræðuþætti eftir kvöldfréttir í sjónvarpi. Röð óvæntra atburða verður til þess að veröld hennar hrynur til grunna. Inn í margslungna söguframvindu þar sem áform, væntingar og langanir ólíkra einstaklinga rekast á, fléttast áleitnar spurningar um stjórnmálahugmyndir, lífsviðhorf og gildismat í samtímanum.
Hinir sterku er magnþrungin skáldsaga um átök á milli fólks, skemmdirnar í lífi þess og sárin sem það felur.
Skáldverk Kristjáns Þórðar Hrafnssonar hafa meðal annars vakið athygli fyrir að fjalla á áhrifamikinn hátt um náin samskipti fólks. Þetta á einkumvið um leikrit hans, m.a. Böndin á milli okkar sem Þjóðleikhúsið sýndi veturinn 2004-2005, og skáldsöguna Hugsanir annarra frá árinu 2002.