Hrafnkels saga og Fljótsdæla saga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 1996 | CD | 2.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 1996 | CD | 2.690 kr. |
Um bókina
Á þessari hljóðbók eru tvær sögur, sagnabálkur um hetjurnar sem forðum riðu um austfirsk héruð.
Hrafnkatla hefur löngum þótt meðal hinna bestu Íslendinga sagna, frábærlega vel samin frásögn um glæp og refsingu, fall og uppreisn höfðingjans Hrafnkels Freysgoða.
Fljótsdæla saga er efnislega tengd Hrafnkötlu, en þar segir þó mest af afkomendum Þiðranda bónda í Njarðvík. Sagan er fjölbreytileg og oft fyndin, stíllin sérstæður og líflegur, persónur margar mjög eftirminnilegar.
Örnólfur Thorsson fer með inngangsorð en Svanhildur Óskarsdóttir með meginmál hljóðbókarinnar.
Hljóðbókin er um 5,25 klukkustundir í hlustun.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.