Húsið

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 588 3.415 kr.
spinner
Rafbók 2012 990 kr.
spinner

Húsið

990 kr.3.415 kr.

Húsið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2012 588 3.415 kr.
spinner
Rafbók 2012 990 kr.
spinner

Um bókina

Á Þorláksmessu 1979 kemur upp eldur í húsi á hæð innst í Kollafirði. Sjö ára gamall drengur kemst lífs af úr brunanum en foreldrar hans og tvö yngri systkini farast. Drengurinn er minnislaus en fær martraðir um eld, reyk og ógnvænlegan mann með hamar í hendi.

Seint í nóvember 2007 er Hörður Grímsson kallaður að húsi í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Í kjallaranum liggur gamall maður í blóði sínu. Flest bendir til þess að um slys sé að ræða en lögreglumaðurinn er á öðru máli. Skömmu síðar flytur fjögurra manna fjölskylda inn í afskekkt hús í Kollafirði og draugar fortíðar vakna til lífsins …

Stefán Máni er fæddur árið 1970. Hann ólst upp á Ólafsvík en býr nú í Reykjavík. Stefán Máni hefur verið rithöfundur í hátt á annan áratug og verk hans hafa notið hylli hérlendis sem erlendis. Árið 2012 var frumsýnd kvikmyndin Svartur á leik eftir samnefndri sögu Stefáns Mána. Húsið er ellefta skáldsaga hans.

Húsið hlaut Tindabikkjuna 2012, verðlaun Glæpafélags Vestfjarða fyrir bestu glæpasögu ársins.

7 umsagnir um Húsið

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

INNskráning

Nýskráning